Háskólalestin á fullu gasi á Skagaströnd

Klukkan átta í morgun söfnuðust krakkar úr tíunda bekk Höfðaskóla á Skagaströnd og Blönduósskóla saman í kirkjunni á Skagaströnd.Tilefnið var setning Háskóla unga fólksins á Skagaströnd. Háskólalestin er komin og ætlar að kynna starf háskólans fyrir unga fólkinu.

Nemendur sækja í dag valin námskeið. Þeim er boðið að kynnast nemendur  stjörnufræði, latínu, fornaldarsögu,  japönsku, nýsköpunar – og frumkvöðlafræðum, íslensku táknmáli, eðlisfræði og fornleifafræði.

Á morgun býðst öllum að taka þátt í dagskrá Háskólalestarinnar á Skagaströnd sem fer fram víða í bænum.

Í félagsheimilinu Fellsborg verður m.a. sýning félaga úr Sprengjugenginu landsfræga, eldorgelið mun óma, gestir kynnast sýntilraunum, teiknirólu, syngjandi skál, japanskri menninguog fornleifafræði, svo eitthvað sé nefnt.

Í kaffihúsinu Bjarmanesi verða í boði stutt fræðsluerindi. Þar fræðir Sævar Helgi Bragason gesti um leyndardóma stjörnufræðinnar, Soffía Auður Birgisdóttir flytur erindið „Endurvinnsla bókmenntaarfsins“, Þorvarður Árnason fjallar um samfélagsgildi kórastarfs, Þór Hjaltalín flytur erindi um Ásbirningaríkið og Albína Hulda Þorsteinsdóttir greinir frá leyndardómum fornleifafræðinnar – nota fornleifafræðingar í alvöru tannbursta og teskeiðar við störf sín?

Vísindaveisla Háskólalestarinnar er öllum opin, aðgangur ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.