Hátíðarhöld sjómannadags færð á laugardag

 

Hefðbundin dagskrá sjómannadags færist fram um einn dag og verður laugardaginn 4. júní. Í tengslum við dagskrána verður nýju björgunarskipi gefið nafn og það vígt formlega. Björgunartækjasýning verðu einnig sett upp á hafnarsvæðinu í tilefni dagsins. Á sunnudeginum er fyrirhugað að hafa hoppukastala á skólalóð fyrir yngstu kynslóðina og þá verðu einnig bíósýning í Fellsborg.

Drög að dagskrá sjómannadags:

 

Laugardagurinn 4.júní 2005.

10: 30  Skrúðganga frá höfn að kirkju.

11:00   Sjómannadagsmessa í Hólaneskirkju.

13:15   Skemmtisigling

14:00   Skemmtun á hafnarsvæðí

  • Kappróður
  • Vígsla á nýju björgunarskipi
  • Björgunartækjasýning
  • Leikir á Hafnarhúsplani

15:30   Kaffisala í Höfðaskóla

23:00   Dansleikur í Fellsborg

 

Sunnudagurinn 5. júní 2005.

14:00   Hoppukastali fyrir börn á skólavelli

18:00   Barna- og fjölskyldumynd sýnd í Fellsborg

                       

Björgunarsveitin Strönd