Heilbrigðisstefna – stefna fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030

Heilbrigðisstefna – stefna fyrir íslenska heilbrigðisþjónustu til ársins 2030 var samþykkt á Alþingi 3. júní síðastliðinn. Þetta eru mikilvæg tímamót fyrir heilbrigðisþjónustuna í landinu. 

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að kynna heilbrigðisstefnuna í öllum heilbrigðisumdæmum landsins og verður fyrsti fundurinn haldinn að 

Hofi á Akureyri 12. júní næstkomandi kl. 17 – 19.

 Á fundinum verður fjallað um hvað felst í stefnunni, hvaða breytingar hún er líkleg til að hafa í för með sér og hvers vegna hún skiptir svo miklu máli, hvort heldur í þéttbýli eða í dreifðari byggðum landsins.

 DAGSKRÁ:

•             Kynning stefnunnar: Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra – Fyrirspurnir úr sal

•             Sýn forstjóra: Jón Helgi Björnsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands – Fyrirspurnir úr sal

•             Sýn forstjóra: Bjarni Jónasson, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri  - Fyrirspurnir úr sal

KAFFIHLÉ

•             Pallborðsumræður. Þátttakendur auk frummælenda verða María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, Valdimar O. Hermannsson, bæjarstjóri á Blönduósi og Elsa B. Friðfinnsdóttir, skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneytinu.

 

Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis. 

Dagskrá má nálgast hér.

 

Athygli er vakin á því að streymt verður beint frá fundinum og verður streymið aðgengilegt á vef sjónvarpsstöðvarinnar N4, vef stjórnarráðsins (www.stjr.is) og á vefsvæði heilbrigðisráðuneytisins (www.hrn.is).