Hjúkrunarheimilið Sæborg á Skagaströnd óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing til starfa.

Hjúkrunarheimilið Sæborg á Skagaströnd óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing til starfa.

Sæborg er lítið hjúkrunarheimili staðsett miðsvæðis á Skagaströnd. Þar búa að jafnaði um 9 íbúar og vinnur heimilið eftir Lev og bo hugmyndafræðinni. Skagaströnd hefur margt að bjóða fyrir fjölskyldufólk.

Mikilvægt er að viðkomandi hafi áhuga á að vinna með öldruðum

Hægt er að semja um starfshlutfall, vinnutíma og vaktatilhögun. En skilyrði að viðkomandi taki bakvaktir.

Menntunar – og hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Þekking og reynsla af sjúkraskrárkerfinu SÖGU og RAI kostur
  • Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi.
  • Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni
  • Góð íslenskukunnátta áskilin
  • Hreint sakavottorð

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn hjúkrun íbúa
  • Skipuleggur og veitir hjúkrunarmeðferðir
  • Leiðbeinir nemum og nýju starfsfólki og/eða skipuleggur störf annarra
  • Hefur eftirlit með gæðum hjúkrunarþjónustunnar
  • Tekur virkan þátt í starfsþróun og gæðastarfi Sæborgar
  • Vinnur við RAI mat og notar Sögukerfi
  • Bakvaktir

 

Umsóknarfrestur er til 30.06.2022.

Upplýsingar veitir

Eydís Inga Sigurjónsdóttir Hjúkrunarforstjóri

Í síma 867-1088 eða e-mail: saeborg@simnet.is