Hjúkrunarheimilið Sæborg á Skagaströnd óskar eftir að ráða sjúkraliða og vant fólk í umönnun aldraðra

Hjúkrunarheimilið Sæborg á Skagaströnd óskar eftir að ráða sjúkraliða og vant fólk í umönnun aldraðra til starfa frá byrjun ágúst.

Sæborg er lítið hjúkrunarheimili staðsett miðsvæðis á Skagaströnd. Þar búa að jafnaði um 9 íbúar og vinnur heimilið eftir Lev og bo hugmyndafræðinni. Bærinn hefur margt að bjóða fyrir fjölskyldufólk.

Mikilvægt er að viðkomandi hafi áhuga á að vinna með öldruðum, lipurð og áreiðanleika í samskiptum, sveigjanleika, frumkvæði, jákvætt viðmót og hæfni í að vinna teymisvinnu. Íslenskukunnátta áskilin.

Um er að ræða vaktavinnu en hægt er að semja um starfshlutfall, vinnutíma og vaktatilhögun. Hvetjum alla þá sem hafa áhuga á að starfa með öldruðum um að sækja um.

 

Umsóknarfrestur er til 30.06.2022.

Upplýsingar veitir

Eydís Inga Sigurjónsdóttir

Hjúkrunarforstjóri

Í síma 867-1088 eða e-mail: saeborg1@simnet.is