Höfðaskóli 70 ára

Höfðaskóli er sjötíu ára á morgun, 17. október. Árið 1939 var komið á fót ,,fastaskóla” á Skagaströnd. Fyrsta skólaárið, 1939-1940, var kennt frá 17. október til 10. maí, alls 135 daga. Nemendur voru þá samtals 46 í 2 bekkjardeildum. Einn kennari starfaði við skólann, Páll Jónsson, og var hann jafnframt skólastjóri.

Í tilefni af afmælinu verður sett ýmis konar efni inn á kapalkerfið um skólann sem núverandi nemendur hafa unnið.

Einnig hafa nemendur tekið saman margvíslegt efni um Höfðaskóla og sett á vef hans. 

Ætlunin er að efna til samkeppi um skólasöng og merki skólans. Nánari upplýsingar verður að finna á vef skólans.