Í vetur sótti Höfðaskóli um styrk hjá Forriturum framtíðarinnar og fékk skólinn þær gleðilegu fréttir í morgun að styrkumsóknin var samþykkt!
Á heimasíðu skólans segir:
Styrkurinn felst í 20 notuðum fartölvum sem Landsbankinn gefur og munu þær nýtast í kennslu á unglingastigi skólans.
Við erum afar þakklát fyrir þessa góðu gjöf og hlökkum til að taka tölvurnar í notkun með nemendum.
Bestu þakkir til Forritara framtíðarinnar og Landsbankans
Frábært verkefni hjá Höfðaskóla! Innilega til hamingju!