Húsnæðisstuðningur vegna 15-17 ára námsmanna .

Foreldrar eða forsjáraðilar námsmanna yngri en 18 ára, sem leigja húsnæði vegna náms fjarri lögheimili, eiga rétt á sérstökum húsnæðisstuðningi vegna barna sinna samkvæmt reglum um sérstakar húsnæðisbætur sem sveitarstjórn hefur samþykkt.


Þar segir m.a. um húsnæðisstuðning til 15-17 ára barna:

Foreldrar/forsjáraðilar geta sótt um stuðninginn á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastandar. Veita skal sérstakan húsnæðisstuðning til foreldra eða forsjáraðila 1517 ára barna sem leigja húsnæði hér á landi vegna náms fjarri lögheimili.

Með húsnæði er átt við herbergi á heimavist eða námsgörðum eða sambærilega aðstöðu á almennum markaði. Þegar fleiri en einn nemandi leigja saman íbúð getur húsnæðisstuðningur náð til þeirrar leigu enda sé gerður leigusamningur við hvern og einn. Um leigu á almennum markaði er gerð krafa um að hvorki umræddur nemandi né aðrir sem leigja húsnæðið séu náskyldir eða mikið tengdir leigusala.

Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna nemenda skal vera óháður tekjum og eignum foreldra eða forsjáraðila og nemur 50% af leigufjárhæð. Húsnæðisstuðningur vegna nemenda getur þó aldrei numið hærri fjárhæð en 45.000 kr./mánuði. Með umsókn um slíkan stuðning skal leggja fram húsaleigusamning og staðfestingu á námi barns.
Reglurnar í heild má finna á heimasíðunni undir "Samþykktir"

Sveitarstjóri