Íbúðarlóðir á Skagaströnd auglýstar til úthlutunar

Eftirfarandi lóð hefur verið skilað aftur til Sveitarfélagsins Skagastrandar og er því auglýst sérstaklega til úthlutunar að nýju.  

  • Hólanesvegur 6

Umsóknarfrestur er 15 virkir dagar fá birtingu auglýsingar þ.e. frá 23. júní - 13. júlí á miðnætti.

Við úthlutun byggingalóða er farið eftir settum reglum þar um en þær finna má hér

Nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri á opnunartíma skrifstofu að Túnbraut 1-3 eða í síma 455-2700. Þá er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið sveitarstjori@skagastrond.is

Jafnframt er vakin athygli öðrum lausum lóðum sem áður voru auglýstar og eru skráðar á úthlutunarlista Sveitarfélagsins Skagastrandar:

  • Bogabraut – ein lóð norðan götu nr: 25.
  • Suðurvegur – ein lóð austan götu nr: 11
  • Sunnuvegur – tvær lóðir vestan götu nr: 10 og 12
  • Ránarbraut – ein lóð norðan götu nr: 3 
  • Skagavegur – tvær lóðir austan götu, nr: 4 og parhúsalóð nr: 6-8.
  • Bankastræti – ein lóð sunnan götu nr. 5.

Umsóknareyðublöð má nálgast hér.

Áætlað er að umsóknir verði teknar fyrir á fundi Hafnar- og skipulagsnefndar í ágúst. Verður öllum umsækjendum svarað. 

 

Sveitarstjóri