Jólafló markaður 11. desember í NES listamiðstöð

Jólafló markaður verður haldinn laugardaginn 11. desember í Nes listamiðstöð á milli klukkan 12:00 til 17:00.

Áttu handverk, bækur, spil, dót, föt, málverk eða muni sem nýtast ekki lengur á heimilinu og leita nýrra ævintýra í jólapakkann.. Hægt er að panta borð (fríkeypis) hjá Evu í síma 6959168. Einnig verður borð og baukur til styrktar Jólasjóðnum góða fyrir þá sem vilja til þeirra sem minna mega sín.

Kakó, djús, smákökur og jólabíó verður í boði á meðan markaðurinn stendur.