Bjarmanes til leigu

Bjarmanes á Skagaströnd er til leigu

Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir eftir umsóknum um að leigja og reka  Bjarmanes á Skagaströnd.

Húsið er laust til afnota snemma á næsta ári og hentar vel til reksturs kaffihúss.

Bjarmanes er fallegt steinhús, byggt 1913 en var allt endurbyggt 2004,og hefur þann einstaka anda sem einkennir mörg gömul hús. Það stendur miðsvæðis með góðu útsýni yfir höfnina og Húnaflóann.

Umsóknum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar fyrir 15. janúar 2022 þar sem m.a. komi fram hugmyndir umsækjanda um reksturinn.

Umsóknum má einnig skila rafrænt á netfangið sveitarstjori@skagastrond.is

Fyrir hönd sveitarstjórnar

Sveitarstjóri