Kaffihlaðborð og jólamarkaður á sunnudaginn

Kaffihlaðborð verður í Bjarmanesi sunnudaginn 7. desember frá kl. 14.00 til 18.00.

Í boði er kaffi, heitt súkkulaði og  jólate, marsipan og marengstertur, brauðtertur og flatkökur með hangikjöti svo eitthvað sé nefnt.

Verð 1000 kr. fyrir fullorðna – 500 kr. fyrir börn 5 - 12 ára.

Frítt fyrir 0 - 4 ára.

 

Eygló Amelía kemur og syngur nokkur jólalög. allir hjartanlega velkomnir.


Á sama tíma verður jólamarkaður í kjallara Bjarmaness þar sem fjölmargir listamenn selja handverk sitt.