Kaffihúsið Bjarmanes er til leigu

Bjarmanes
Bjarmanes
 Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir eftir umsóknum um að leigja og reka Kaffi- og menningarhúsið Bjarmanes á Skagaströnd.

 

Húsið er laust til afnota og í því er búnaður til reksturs kaffihúss. Bjarmanes er fallegt steinhús, byggt 1913 en var allt endurbyggt 2004, og hefur þann einstaka anda sem einkennir mörg gömul hús. Það stendur miðsvæðis með góðu útsýni yfir höfnina og Húnaflóann.

 

Umsóknum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Skagastrandar fyrir 25. mars 2015 þar sem m.a. komi fram hugmyndir umsækjanda um reksturinn. Umsóknum má einnig skila rafrænt á netfangið magnus@skagastrond.is

 

Fyrir hönd sveitarstjórnar,

Magnús B. Jónsson sveitarstjóri.