Kántrýdagar að hefjast í sól og yl

Skagströnd er að búa sig undir Kántrýhátíð. Íbúarnir hafa verið að skreyta bæinn síðustu daga og útkoman er óskaplega skemmtileg. Verðið spillir ekki heldur fyrir, glampandi sól og hiti um 15 gráður þegar þetta er skrifað um kl. 15 á föstudegi. 

Starfsfólk Vinnumálastofnunar brá undir sig betri fætinum, stökk út í sólina og dansaði af lífsins list eins og sjá má á þessum myndum.

Fjöldi fólks er kominn í bæinn . Húsbílar, tjaldvagnar og fellihýsi eru víða í görðum og tjaldsvæðið er næstum því orðið fullt.

Hátíðin hefst með fallbyssuskoti á Bjarmanesi kl. 18 og þá eru opin hús í Smábæ á Kofavöllum.