Kántrýsetur verður opnað í Kántrýbæ

Þann 11. júní næstkomandi, sem er laugardagurinn fyrir hvítasunnu, verður opnað Kántrýsetur í Kántrýbæ með mikilli viðhöfn. 

Þar verður ævintýraleg og óvenjuleg saga Hallbjörns Hjartarsonar til sýnis, allt frá fæðingu fram á þennan dag. Saga sem hófst í líkhúsinu á Blönduósi því Hallbjörn var talinn andvana við fæðingu. 

Hallbjörn hafði hins vegar einsett sér að lifa og eins og þeir vita sem þekkja hann  heldur hann alltaf sínu striki, hvað sem hver segir. Ótal margir hafa hrist höfuðið yfir uppátækjum hans, allt frá því hann var barn. Sjálfur segist hann alltaf hafa haft sína vitleysu á þurru, ólíkt mörgum, og draumur hans um að gera Skagaströnd að eftirsóknarverðum ferðamannastað hefur sannarlega ræst. 

Formleg opnun setursins verður laugardaginn 11. júní og af því tilefni hefur Magnús Kjartansson búið til heiðurshljómsveit Hallbjörns Hjartarssonar með söngvarana Björgvin Halldórsson, Selmu Björnsdóttur og Heiðu Ólafsdóttur í fararbroddi. Hljómsveitin mun halda tónleika í Kántrýbæ og slá svo upp sannkölluðu kántrýballi að hætti kúreka norðursins. 

Hugmyndin um Kántrýsetur er ekki ný af nálinni en er nú loks að verða að veruleika. Það eru núverandi rekstraraðilar Kántríbæjar, þau Gunnar Sveinn Halldórsson og Svenny H. Hallbjörnsdóttir (Hjartarsonar) sem standa að setrinu með stuðningi Menningarráðs Norðurlands vestra og Minningarsjóðs um hjónin frá Vindhæli og Garði, Sveitarfélagsins Skagastrandar og Iðnaðarráðneytis. 

Umsjón með verkefninu hefur Margrét Blöndal, útvarpskona með meiru og um hönnun og uppsetningu sér Björn G. Björnsson, leikmyndahönnuður.