Karlakórinn Heimir í Hólaneskirkju á fimmtudaginn

Karlakórinn Heimir í Skagafirði bregður sér vestur yfir Skagann og heldur tónleika í Hólaneskirkju á Skagaströnd fimmtudaginn 17. mars kl. 20:30.

Kórinn hefur hlotið mikið lof fyrir dagskrá vetrarins og mega Skagstrendingar og nærsveitafólk því eiga von á prýðilegri skemmtun.

Veðurspá lofar góðu og færð er með betra móti og kórinn hlakkar til að sjá sem flesta á fimmtudagskvöldið.

Kórinn var stofnaður í lok desember árið 1927. Stofnendur hans komu flestir úr litlum kór og var hann nefndur Bændakór. Hann var í framhéraði Skagafjarðar og starfaði í 11 ár. 

Fyrstu árin störfuðu kórfélagar við mjög frumstæðar aðstæður. Það var æft heima á sveitabæjum þar sem orgel voru til staðar enda var nú ekki mikið um samkomuhús á þessum tímum. En félagsskapurinn stækkaði og áhuginn var mikill. 

Til æfinga fóru menn aðallega gangandi eða ríðandi en stundum fóru þeir einnig á skíðum. Voru þessar ferðir oft hættulegar og var það augljóst að margir lögðu mikið á sig til að geta verið með í söngnum. 

Fyrsti söngstjóri kórsins var Gísli Magnússon frá Eyhildarholti, á eftir honum var tónskáldið Pétur Sigurðsson og síðan Jón Björnsson, einnig tónskáld, frá Hafssteinsstöðum. Hann stjórnaði Heimi í nærri því 40 ár. 

Margir aðrir söngstjórar hafa stjórnað kórnum í gegnum tíðina og þeirra er og margvígslegs fróðleik er getið í samantekt Konráðs Gíslasonar: „Söngur í 60 ár“.
 
Stefán R. Gíslason hefur stjórnað kórnum nær óslitið frá árinu 1985 en hefur nú tekið árshlé frá störfum.   2010-2011 er Helga Rós Indriðadóttir nú stjórnandi kórsins. Undirleikari er dr. Thomas R Higgerson á píanó.