Kjörskrá vegna sameiningarkosninga í A-Hún

Kjörskrá vegna fyrirhugaðra sameiningarkosninga sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu liggur nú frammi á skrifstofu Sveitarfélags Skagastrandar fram að kjördegi, laugardaginn 5. júní 2021.

Einnig er hægt að kanna sína skráningu hér á heimasíðu Þjóðskrá með því að fara inná flipann "Sameiningarkosningar 5. júní 2021 - Hvar á ég að kjósa?"

Kjörstaður á Skagaströnd verður: Félagsheimilið Fellsborg og verður kjörstaður opinn frá kl. 10:00-20:00 laugardaginn 5. júní 2021.