Kortasjá

Vakin er athygli lesenda www.skagastrond.is að á vefinn er komin kortasjá fyrir Skagaströnd. Kortasjáin er loftmynd sem er tekin ..... á sólríkum sumardegi. Hægt er að draga myndina nær með því að nota stýristiku efst til vinstri á kortinu. Á kortasjánni er líka fyrsti vísir að örnefnamerkingu sem þarf auðvitað að fylla betur í. Þá eru merkingar á þjónustustofnunum með sérstökum kortatáknum.

Kortasjána má opna með því að smella á hnappinn sem er þannig merktur neðar á síðunni.