Kúreki norðursins heiðraður

Hallbjörn J. Hjartarson "kúreki norðursins" heiðraður af Country Music Association  og sendiráði Bandaríkjanna Íslandi.

 

            Sendiherra Bandaríkjanna Luis E.Arreaga mun veita Hallbirni J. Hjartarsyni viðurkenningu fyrir að koma kántrýtónlist á framfæri á Íslandi og fyrir framlag hans til Kántrýtónlistar.  Afhending viðurkenningarinnar fer fram í Kántríbæ á Skagaströnd þriðjudaginn 18. september kl. 17.00. 

 

Sendiherrann mun veita Hallbirni viðurkenningu frá hinu bandaríska Country Music Association með áletruninni „The Country Music Association Recognizes Hallbjörn Hjartarson for his Contributions to Country Music in Iceland.“ viðurkenningin er undirrituð af forstjóra samtakanna Steve Moore.

 

Hallbjörn fær einnig viðurkenningu frá sendiráði Bandaríkjanna á Íslandi með áletruninni "The Embassy of the United States of America recognizes Hallbjörn Hjartarson  “The Icelandic Cowboy” for his invaluable efforts to promote country music in Iceland. His dedication and creativity have combined the American music style with Icelandic culture creating a unique genre of Icelandic Country music."

 

Hallbjörn’s artistry is a wonderful bridge between American and Icelandic culture. His music brings people together” – Luis E. Arreaga, U.S. Ambassador to Iceland

 

Hallbjörn sem er löngu landsþekktur fyrir tónlist sína er frumkvöðull sem hefur helgað lífsstarf sitt því að samþætta íslenska tónlist við bandaríska tónlistarstefnu án þess nokkurn tíma að víkja frá textagerð á móðurmálinu. Hann hefur um langt árabil átt og rekið útvarpsstöðina „Útvarp Kántrýbæ“ sem hefur kynnt kántrýtónlist fyrir fjölmörgum Íslendingum auk þess hefur Hallbjörn hefur gefið út fjölda hljómplatna með íslenskri kántrýtónlist. Hann stofnaði einnig veitingastaðin Kántrýbæ sem hefur sterka tilvísun í þá tónlistarstefnu sem Hallbjörn stendur fyrir.

 

Kynnar við afhendinguna verða Margrét Blöndal og Ásbjörn Björgvinsson. Til máls taka Adolf H. Berndsen, oddviti Sveitarfélagsins Skagastrandar, Luis E. Arreaga, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi og Hallbjörn J. Hjartarson, „Kúreki Norðursins.“ Tónlistarstjórn verður í höndum Magnúsar Kjartanssonar og með honum verða þjóðþekktir tónlistarmenn.

 

Við óskum Hallbirni innilega til hamingju.