Kvenafrídagurinn 2010 er á mánudaginn - og allar út

Starfskonur Vinnumálastofnunar ætla að ganga út af vinnustað sínum kl. 14:25 á mánudaginn 25. október  og efna til göngu frá Stjórnsýsluhúsi.
Þær bjóða allar konur á Skagaströnd velkomnar í gönguna og hvetja þær til að taka þátt í þessum degi með þeim.

Þema dagsins er rauður og hvetjum þær allar konur að mæta í einhverju rauðu! 

Gengið verður út Strandgötuna og til baka að Bjarmanesi þar sem starfskonur Vinnumálastofnunar bjóða upp á kaffi og meðlæti. Auður Herdís Sigurðardóttir, félagsmálastjóri talar gegn ofbeldi.

Áfram stelpur!

Konur gegn kynferðisofbeldi!