Kynning í prjónakaffi Textílseturs

Garn.is verður með veglega kynningu í prjónakaffi Textílseturs fimmtudaginn 18. mars kl. 20.00.

Inga og Elínborg kynna prjónablaðið Björk en 2. tbl. er með úrvali uppskrifta af barnafötum. Athugið að ekki er posi á staðnum.

Textílsetur Íslands er í Kvennaskólanum, Árbraut 31 á Blönduósi. Síminn þar er 452 4300 og vefurinn er á slóðinni.www.textilsetur.is