Kynningarfundur um námskeið um stofnun og rekstur fyrirtækja


Boðið verður upp á hagnýtt námskeið um stofnun og rekstur fyrirtækja þar sem þátttakendur vinna með eigin hugmyndir eða fyrirtæki. Kynningarfundur verður haldinn um námskeiðið í Bjarmanesi miðvikudaginn 22 september kl. 14:30.

Það er Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands í samvinnu við SSNV og Sveitarfélagið Skagaströnd og Blönduósbæ sem stendur fyrir námskeiðinu. 
    
Boðið verður upp á hressingu á meðan frekari kynning á námskeiðinu fer fram og eins mun Kjartan Ragnarsson leikstjóri og forstöðumaður  Landnámssetursins  í Borgarnesi segja frá reynslu sinni og gefa góð ráð. 

Grundvöllur námskeiðsins
Námskeiðið Sóknarbraut er námskeið um rekstur fyrirtækja þar sem áhersla er lögð á markaðssetningu, stjórnun og fjármál. 

Markmiðið er að veita þátttakendum hagnýta menntun og stuðning sem hvetur þá til að koma hugmyndum sínum í framkvæmd og nýta þau tækifæri sem eru til staðar.  

Kennslan fer fram á fræðilegum og faglegum grunni og á námstímanum vinna þátttakendur að ákveðnu verkefni sem byggir á þeirra eigin viðskiptahugmynd. 

Fyrirhugað er að hafa tvo hópa, náist nægilegur fjöldi þátttakenda, og kennt verður á miðvikudögum: 
  • Blönduós – frá 09:00-13:00
  • Hvammstangi- frá 14:00-18:00

Fyrirkomulag 
Hugmyndin að baki námskeiðinu byggir á að brúa bilið á milli hugmyndar og markvissrar framkvæmdar með því að leiðbeina og þjálfa þátttakendur í því að takast á við frumkvöðlastarf, stjórnun og rekstur fyrirtækis. 

Námskeiðið byggir á fyrirlestrum, þjálfun, viðtölum og verkefnum sem tengjast þeirri hugmynd sem hver einstaklingur vinnur að hverju sinni.  Meðal verkefna sem unnin verða eru markaðsáætlun, kynning á viðskiptahugmynd, fjárhagsáætlun og verkáætlun. 

Námskeiðið er alls 40 kennslustundir sem skiptast í 10 hluta auk þriggja opinna vinnusmiðja sem þátttakendur geta mætt í og unnið að sínu verkefni undir handleiðslu leiðbeinanda.  Hver hluti er fjórar klst. Stefnt er að því að námskeiðið hefjist 6. október.

Fyrir hverja?
Námskeiðið Sóknarbraut er fyrir núverandi og verðandi stjórnendur minni fyrirtækja. 

Námskeiðið hentar vel einstaklingum sem starfa sem stjórnendur í minni fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa hug á að hrinda í framkvæmd viðskiptahugmynd eða stofna eigið fyrirtæki.  

Sóknarbraut er opið jafnt körlum sem konum og ekki er gerð krafa um sérstaka undirbúningsmenntun, þátttakendur þurfa einungis að hafa viðskiptahugmynd til að vinna með á námskeiðstímanum. 

Umsóknareyðublöð má finna á vefsíðu Impru (www.impra.is ). Skráningarfrestur er til 29. september.

Kynningarfundir og skráning
Þrír kynningarfundir um Sóknarbraut verða haldnir miðvikudaginn 22. september á Blönduósi, Skagaströnd og Hvammstanga eftir því sem hér segir:
  • Potturinn og pannan á Blönduósi kl. 12:00
  • Bjarmanes á Skagaströnd kl. 14:30
  • Hlaðan Kaffihús á Hvammstanga kl. 17:00
Boðið verður upp á hressingu á meðan frekari kynning á námskeiðinu fer fram og eins mun Kjartan Ragnarsson leikstjóri og forstöðumaður  Landnámssetursins  í Borgarnesi segja frá reynslu sinni og gefa góð ráð. 

Nánari upplýsingar má nálgast hjá Selmu Dögg Sigurjónsdóttur  á netfanginu selma@nmi.is eða í síma 522 9434. Skráning fer fram á heimasíðu Impru, www.impra.is.