Kynningarfundur vegna stofnunar framhaldsdeildar (dreifnáms) í Austur Húnavatnssýslu fyrir nemendur í elstu bekkjum grunnskóla og foreldra/forráðamenn þeirra

 

Á mánudaginn  11. mars verður boðið til kynningarfundar vegna fyrirhugaðs framhaldsnáms (dreifnáms) í heimahéraði.

 

 

Fundurinn  verður haldinn kl. 20:00 í tölvuveri Höfðaskóla 11. mars og eru allir íbúar hjartanlega velkomnir en foreldrar elstu nemenda grunnskólans eru sérstaklega hvattir til að mæta til að kynna sér þessa leið við byrjun framhaldsnáms.

 

Á fundunum mun Þorkell Þorsteinsson, aðstoðarskólameistari Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra, fara ítarlega yfir starfsemi deildarinnar.  Rakel Runólfsdóttir umsjónarmaður dreifnáms FNV á Hvammstanga og nemendur þaðan kynna hvernig til hefur tekist með uppbyggingu dreifnámsins á Hvammstanga. Fulltrúar sveitarfélaga í A-Hún.  munu skýra frá undirbúningi heima í héraði.  Auk kynninganna verður tekið við fyrirspurnum frá fundargestum.

 



Með von um góða mætingu!

Undirbúningsnefnd