Landssöfnun Lions 17.-19. apríl 2015

 

Rauða fjöðrin seld til að kaupa leiðsöguhunda fyrir blinda

  • Hver hundur kostar 8-10 milljónir króna þegar allt er talið.

  • Þörf er á 14-16 hundum á Íslandi en aðeins 7 verða í þjónustu á komandi sumri.

  • Lionsfólk á Skagaströnd verður á ferðinni á föstudagskvöldið og mun ganga í hús og safna.

    Dagana 17. 19. apríl fer landssöfnun Lions, Rauða fjöðrin, fram um allt land. Markmiðið er að safna í sjóð til að fjármagna kaup á leiðsöguhundum fyrir blinda í samvinnu við Blindrafélagið og Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga. Hver hundur getur kostað allt að 10 milljónir króna og unnið í allt að 10 ár. Hundarnir eru sérvaldir með hliðsjón af eiginleikum þeirra og eru tilbúnir til starfa við 2 1/2 árs aldur eftir gríðarlega þjálfun. Vinnusamband manns og hunds byggir síðan ekki síst á vináttu þeirra og kærleika. Leiðsöguhundar bæta lífsgæði blindra og sjónskertra verulega og stuðla að aukinni virkni þeirra í samfélaginu.
               
    Lionsfélagar verða á ferðinni þessa helgi með rauðu fjöðrina til sölu. Þeir verða í verslunarmiðstöðvum og á fleiri fjölförnum stöðum. Auk þess verða valgreiðslur sendar í heimabanka og hringja má í söfnunarnúmer.
               
    Verndari söfnunarinnar er hr. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands.

Söfnunarnúmer

Auk þess að kaupa rauðu fjöðrina má leggja verkefninu lið með því að greiða valgreiðslu í heimabanka eða millifæra upphæð að eigin vali inn á reikning Lions: 0111-26-100230, kt. 640572-0869.

Einnig er hægt að hringja í söfnunarsímanúmer:

  • Styrkur að fjárhæð 1.000 kr. skuldfærist af símreikningi þegar hringt er í símanúmerið 904 1010.

  • Styrkur að fjárhæð 3.000 kr. skuldfærist af símreikningi þegar hringt er í símanúmerið 904 1030.

  • Styrkur að fjárhæð 5.000 kr.  skuldfærist af símreikningi þegar hringt er í símanúmerið 904 1050.