Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026 fór fram dagana 23.-25. september í Hofi á Akureyri. Oddviti sveitarstjórnar, Ragneiður Erla Stefánsdóttir, var fulltrúi Sveitarfélagsins Skagastrandar á þinginu. Ásamt henni sótti Ólafur Þór Ólafsson, sveitarstjóri, þingið.
Á þinginu var m.a. kjörin ný stjórn auk þess sem þingfulltrúar mótuðu þá stefnu sem sambandið mun starfa eftir á kjörtímabilinu. Í lok þingsins var samþykkt ályktun um að sveitarfélög sýni ábyrgð gagnvart stöðu efnahagasmála og taki virkan þátt í að bæta hana, m.a. með því að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% á árinu 2027. Ályktunina má sjá í heild sinni á heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga.