Latneski mánuðurinn hjá Nes-listamiðstöð

Átta listamenn verða á Skagaströnd í mars á vegum Nes-listamiðstöðvar. Með mökum og einu barni er um að ræða þrettán manns.

Gárungarnir kalla mars latneska mánuðinn vegna þess hve margir koma frá suðlægum löndum. En þetta eru listamennirnir:

  • Marie Britt, myndhöggvari frá Írlandi ásamt maka og barni
  • Lucy McKenna, málari frá Írlandi
  • Nadege Druzkowski, málari frá Frakklandi
  • Lucas Gervilla, videó-listamaður frá Brasilíu
  • Julieta do Vale, portúgalskur myndlistamaður ásamt maka
  • Noemi Romano, textílistamaður frá Ítalíu
  • Anna Sigríður Sigurjónsdóttir, myndhöggvari ásamt maka
  • Mie Olise Kjærgaard, fjöllistamaður frá Danmörku