Laus störf hjá Vinnumálastofnun á Skagaströnd4

Laus störf hjá Vinnumálastofnun

Tímabundin störf hjá Greiðslustofu atvinnuleysistrygginga á Skagaströnd.

Vinnumálastofnun leitar eftir kraftmiklum og jákvæðum starfsmönnum í liðsheild sína hjá Greiðslustofu á Skagaströnd. Um er að ræða tímabundið starf í að minnsta kosti 6 mánuði.

Í boði eru fjölbreytt verkefni með jákvæðum og uppbyggilegum samstarfshópi.

Leitað er eftir einstaklingum sem eiga auðvelt með að tileinka sér gildi Vinnumálastofnunnar: Fyrirmyndarþjónusta; Virðing; Áreiðanleiki.

Áhugasamir geta kynnt sér starfsemi stofnunarinnar á heimasíðu hennar Vinnumalastofnun.is

Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist til Jensínu Lýðsdóttur, forstöðumanns Vinnumálastofnunar Norðurlandi vestra - Greiðslustofu, Túnbraut 1-3, 545 Skagaströnd eða á netfangið jensina.lydsdottir@vmst.is fyrir 30. júlí næstkomandi.

Nánari upplýsingar hjá Jensínu í síma 515 4800.