Leitað er að áhugasömum og vandvirkum aðalbókara til að starfa fyrir Sveitarfélagið Skagaströnd.
Starfsmaður hefur yfirumsjón með bókhaldi sveitarfélagsins og stofnana þess, sinnir reikningagerð, launavinnslu, afgreiðslu og þjónustu, auk annarra tilfallandi verkefna. Starfsmaður sinnir gerð ársreikninga og fjárhagsáætluna og veitir upplýsingar og ráðgjöf til stjórnenda og starfsfólks sveitarfélagsins.
Um er að ræða 100% stöðu og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Menntunar- og hæfniskröfur
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Ragnheiður Stefánsdóttir, staðgengill sveitarstjóra veitir frekari upplýsingar um starfið í síma 866 8789 eða með tölvupósti á netfangið sveitarstjori@skagastrond.is.
Umsókn, kynningabréf og ferilskrá skal senda á netfangið sveitarstjori@skagastrond.is. Umsóknarfrestur er til og með 18. júlí næstkomandi.