Leikskólinn Barnaból - frábærar niðurstöður úr lykilmælingum

Leikskólinn Barnaból tók þátt í foreldrakönnun Skólapúlsins og voru niðurstöður hreint út sagt frábærar.

Í könnuninni kom fram að 100% ánægja var á meðal foreldra með:

  • Ánægja foreldra með leikskólann
  • Ánægja barnsins í leikskólanum
  • Ánægja með vinnubrögð
  • Ánægja með stjórnun
  • Síðast en ekki síst mælingunum um þátttöku á aðgreiningar, sem endurspeglar við eitt af grunngildum Hjallastefnunnar um að „mæta hverju barni“

Sé árangurinn borinn saman við aðra skóla almennt á landinu er Barnaból að koma mun betur út á öllum lykilmælingum. Það sem er þó kannski enn mikilvægara er hversu miklu ánægðari foreldrar eru með skólann miðað við í síðustu mælingu, sem var gerð 2014.

Almenn ánægja með leikskólann hefur aukist um 42% og ánægja með vinnubrögð um 55,6% frá því 2014

Einnig er stór liður í mati á skólastarfinu árlegt gæða innlit þar sem hjallískir starfshættir eru skoðaðir. Leikskólinn Barnaból kom mjög vel út úr því mati í samanburði við aðra hjallaskóla eða með 97% af uppfylltum matsatriðum.

Þetta eru glæsilegar fréttir á þessum góða föstudegi!