Líf og fjör á Landbúnaðarsýningu

Vörusmiðjan átti öfluga fulltrúa að þessu sinni á Landbúnaðarsýningu sem haldin var í Laugardalshöll síðastliðna helgi. Þær systur Þórhildur og Auðbjörg stóðu vaktina f.h. Vörusmiðjunnar og gerðu sér lítið fyrir og lögðu bíl smáframleiðanda á besta stað inni í höllinni. Gestir gátu því heilsað uppá smáframleiðendur og stundað viðskipti í hinum víðfræga bíl smáframleiðanda. Gerður var afburða góður rómur af bílnum og voru viðskipti með vörur smáframleiðanda nokkuð lífleg. Vörusmiðjan þakkar öllum sem komu við hjá okkur um helgina og minnir á að hægt er að nálgast vörur smáframleiðanda í gegnum netverslun Vörusmiðjunnnar Netverslun | Vörusmiðja - BioPol (vorusmidja.is). Fólki á Norðurlandi vestra gefst einnig tækifæri til þess að nálgast vörur smáframleiðenda í bílnum sem nú er á ferðinni um svæðið.