Listamenn októbermánaðar í Nes listamiðstöðinni

Fjórtán nýir listamenn koma nú til starfa hjá Nes listamiðstöð á Skagaströnd.

Tæplega eitt og hálft ár er nú síðan fyrstu listmennirnir komu og síðan hafa um 160 manns komið til Skagastrandar til að sinna listsköpun sinni. Fjölmargir þeirra halda enn góðu sambandi við Nes listamiðstöð, m.a. í gegnum Facebook. Margir þeirra hafa eignast góða vini á Skagaströnd og jafnvel er dæmi um enn dýpra samband ...

Víst er að Skagstrendingar bjóða hina nýju listamenn velkomna og vona að dvölin verði þeim sem ánægjulegust.

Listamenn októbermánaðar eru þessir:

  • Hannah Casey, myndlistamaður frá Írlandi
  • Princess Ayelotan, rithöfundur frá Frakklandi
  • Maurice Orr (John Will), myndlistmaður frá Írlandi
  • Caroline Lioré, ljósmyndari frá Frakklandi
  • Renata Padovan, brasilískur listamaður sem vinnur ljósmyndir og vídeó
  • Oliver Gardiner, videolistamaður frá Englandi
  • Bendel Hydes, málari frá Bandaríkjunum
  • Di Ball, vinnu blandaða list og er frá Ástralíu
  • Louisa Conrad, myndlistarmaður frá Bandaríkjunum
  • Lucas Farrell, rithöfundur frá Bandaríkjunum
  • Adrian Buitenhuis, kanadískur listamaður sem vinnur video/myndlist
  • Sue Gordon frá Kanada, vinnur paint/print
  • Laura Hensser, vinnur með ljósmyndir og kemur frá Englandi
  • Ciara O’Hara, myndlistarmaður frá Írlandi