Listsýningin í Landsbankanum


Vettvangur fyrir listsýningar yngsta fólksins er Landsbanki Íslands. Löng hefð er fyrir því að bankinn bjóði leikskólanemum að vera með listsýningu í útibúinu  í byrjun hvers árs.
 
Sýningin var að þessu sinni opnuð 4. febrúar i tengslum við alþjóðlega leikskóladaginn.
 
Nafn sýningarinnar er „Hafið, fjaran, ég og fjölskylda mín“.

Nú líður senn   að lokum sýningarinnar vill bankinn og listamennirnir hvetja þá sem ekki hafa séð sýninguna að gera það sem allra fyrst.
  
Skagstrendingar mega vera stoltir af þessum upprennandi listamönnum.