Lokað fyrir heimsóknir á Sæborg

Lokað er fyrir heimsóknir á Sæborg
Tekin hefur verið ákvörðun um að loka heimilinu fyrir heimsóknum ættingja og annarra gesta frá og með 7. mars, þar til annað verður formlega tilkynnt.
Er þetta gert að höfðu samráði við sóttvarnayfirvöld eftir að neyðarstigi almannavarna var lýst yfir vegna COVID-19 veirunnar.

Allra leiða er leitað til að draga úr hættu á að íbúar veikist og er lokunin liður í því.

Við sérstakar aðstæður má leita undanþágu hjá hjúkrunarfræðingi.


Við viljum benda fólki á að kynna sér upplýsingar og leiðbeiningar á vef Landlæknisembættisins www.landlaeknir.is um stöðu mála, en þær geta breyst frá degi til dags.


Ef frekari upplýsinga er óskað er hægt að hafa samband við hjúkrunarfræðing í síma 452 2810 eða saeborg@simnet.is