11. júlí lokað fyrir víkina vegna framkvæmda

Vegna fráveituframkvæmda þarf að loka fyrir víkina frá Vík/leikskóla. Áætlað er að lokun hefjist um 10:00 á morgun þriðjudag 11. júlí eitthvað fram eftir degi. Íbúar og aðrir vegfarendur þurfa því að fara efri leiðina hjá Laufási/Ás um Vetrarbraut á meðan á því stendur en ef það lengist í framkvæmdum verður reynt að búa til hjáleið meðfram lokun á veginum. 

 

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.