Málþing á Gauksmýri um Mat úr héraði

Virki þekkingarsetur býður til málþings á Gauksmýri, 28. Apríl 2011 kl. 13-17. Dagskrá þingsins verður sem hér segir:

13:00 - 13:10 Setning Sigurbjörg Jóhannesdóttir, formaður Byggðarráðs Húnaþings vestra
13:10 - 13:40 Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, Háskólinn á Hólum: Ferðaþjónusta sem bragð er að - straumar og stefnur í matarferðaþjónustu 
13:40 - 14:10 Dominique Plédel. Jónsson, Slow Food: góður, hreinn og sanngjarn matur 
14:10 - 14:40 Matís Guðmundur J. Guðmundsson, Beint frá Býli: Staða og framtíð í sölu Beint frá býli 
14:40 - 15:10 Þóra Valsdóttir, Matís: Vöruþróun og smáframleiðsla matvæla

Kaffihlé í 20 mínútur

15:30 - 15:45 Svanhildur Pálsdóttir, Hótel Varmahlíð: Skagfirska Matarkistan og ég.
15:45 - 16:00 Stella J. A. Leví og Sæunn V. Sigvaldadóttir, Sæluostur úr sveitinni 16:00 - 16:15 Gudrun Kloes og Kristín Jóhannesdóttir, Fjöruhlaðborð og Sviðamessa
16:15 - 16:30 Svava Lilja Magnúsdóttir, Brauð og Kökugerðin: Smábakarí á landsbyggðinni 
16:30 - 16:45 Guðmundur Helgason, Matarvirki og Kjöthornið:
Matvælavinnsla - þekking í héraði
16:45- 17:00 Pálína Fanney Skúladóttir, Spes Sveitamarkaður

Grillhlaðborð
Eftir málþingið ætlar Sveitasetrið Gauksmýri að taka forskot á sæluna og bjóða upp á grillhlaðborð eins og það hefur verið með undanfarin sumur við miklar vinsældir.

Óskað er eftir því að fólk panti á hlaðborðið í síðasta lagi 19. apríl í síma 451 2927, eða hjá Virki þekkingarsetri í síma 455 2525. Hlaðborðið hefst kl. 18:00.
Verð á mann kr. 4000,-