Menningar- og samstöðutónleikar fimmtudaginn 19. nóvember

Menningar- og samstöðutónleikar fara fram fimmtudaginn 19. nóvember 2026. Tónleikarnir verða í Hólaneskirkju og hefjast kl. 20:00.

Kirkjukór Hólaneskirkju kemur fram ásamt hljómsveit. Kvartett, munnhörpuleikari og einsöngvarar verða einnig með atriði.

Ekkert kostar inn en hægt að leggja fram frjáls framlög þar sem allur ágóði rennur til  Bergrósar Hafsteinsdóttur, sem nú heyir hetjulega baráttu við krabbamein.  Enginn posi verður á staðnum. Eftir tónleika verður boðið uppá upprúllaðar pönnukökur í boði samstarfskvenna Bergrósar á Barnabóli.

Ef það er fólk sem kemst ekki á tónleika en langar að leggja málefninu lið þá er hægt að leggja hér inn:
Kt: 650169-6469
Rkn: 0161-05-070173