Menningarstyrkir

Verkefnastyrkir til menningarstarfs 2013

Menningarráð Norðurlands vestra auglýsir eftir umsóknum um verkefnastyrki á grundvelli menningarsamnings mennta- og menningarmálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis við SSNV. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarf og menningartengda ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra.

 

Ákveðið hefur verið að hafa eina úthlutun á árinu 2013, með umsóknarfresti til og með 7. febrúar.

 

Menningarráð hefur ákveðið að þau verkefni hafi forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:

·         Fjölga atvinnutækifærum og efla samstarf á sviði menningar og lista.

·         Stuðla að nýsköpun og þróun í menningu og menningartengdri ferðaþjónustu.

·         Verkefni sem stuðla að þátttöku allra þjóðfélagshópa í menningu og listum.

·         Verkefni sem leiða til samstarfs við önnur lönd á sviði menningar og lista.

·         Verkefni sem draga fram staðbundin eða svæðisbundin menningareinkenni eða menningararf.

·         Verkefni sem stuðla að listsköpun og menningarstarfi ungra listamanna.

 

Stofn- og rekstrarstyrkir til menningarstarfs 2013

Menningarráð Norðurlands vestra auglýsir eftir umsóknum um stofn- og rekstrarstyrki á grundvelli menningarsamnings mennta- og menningarmálaráðuneytis við SSNV.

Tilgangur styrkjanna er að efla starfsemi á sviði lista, safna og menningararfs. Styrkirnir miðast við starfsemi árið 2013.

 

Menningarráð hefur ákveðið að þeir umsækjendur hafi forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða við úthlutun ársins 2013:

Ø  Stuðla að því að efla menningarstarfsemi á sviði lista, safna- og menningararfs.

Ø  Stuðla að nýsköpun í menningarstarfsemi.

Ø  Styðja við menningarstarfsemi sem fjölgar atvinnutækifærum á svæðinu.

 

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Úthlutunarreglur og umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu SSNV, www.ssnv.is, undir liðnum Menningarráð.

 

Umsóknir skulu sendar Menningarfulltrúa Norðurlands vestra, Einbúastíg 2, 545  Skagaströnd, eigi síðar en 7. febrúar 2013. Þær má senda rafrænt á netfangið menning@ssnv.is. Séu þær sendar í pósti skulu þær póststimplaðar eigi síðar en síðasta umsóknardag.

 

Allar nánari upplýsingar og aðstoð veitir Ingibergur Guðmundsson, menningarfulltrúi, símar 452 2901 / 892 3080, netfang menning@ssnv.is.