Mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar - Ferðaþjónusta

Mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar til eflingar ferðaþjónustu - Auglýst er eftir umsóknum

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita alls 160 milljónum króna til eflingar ferðaþjónustu á þeim svæðum sem verða fyrir aflasamdrætti vegna skerðingar á veiðiheimildum.

Auglýst er eftir umsóknum um stuðning við verkefni til atvinnusköpunar í ferðaþjónustu á ofangreindum svæðum. Umsækjendur geta verið sveitarfélög, einstaklingar og fyrirtæki og er hámarksstyrkur til hvers verkefnis 8 milljónir kr.

Verkefnin verði unnin á árunum 2008-2009 og verður styrkurinn greiddur í tvennu lagi, helmingur hvort ár. Seinni greiðslan er háð árangursmælingu í samræmi við ákvæði í umsókn, en hver umsækjandi gerir tillögu að árangursmælikvarða fyrir viðkomandi verkefni.

Við afgreiðslu umsókna verður sérstaklega litið til langtímaáhrifa verkefna á sköpun nýrra starfa á svæðunum og hversu hratt störfin geta orðið til. Ekki er um að ræða styrki til menntunar eða rannsókna.

Umsóknum skal skila á sérstökum umsóknareyðublöðum, sem hægt er að nálgast á vefsíðum Byggðastofnunar ( www.byggdastofnun.is ) og Ferðamálastofu ( www.ferdamalastofa.is )

Umsóknum skal skila til Byggðastofnunar, Ártorgi 1, 550 Sauðárkróki
eða Ferðamálastofu, Lækjargötu 3, 101 Reykjavík fyrir 5. febrúar 2008.

Nánari upplýsingar gefur Helga Haraldsdóttir, Iðnaðarráðuneyti.