Mynd vikunar

Ljósmynd: Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir
Ljósmynd: Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir

Einari Hauk Arasyni finnst vænt um kindurnar sínar og þeim um hann. Á myndinni, sem líklega var tekin haustið 2021, er Einar að spjalla við hópinn sinn, sem þá var nýkominn af fjalli. Eins og sjá má eru kindurnar og lömbin ekki stygg enda góðu vanar af hendi Einars.  Myndin er ein af myndunum sem sendar voru inn í ljósmyndakeppni Gleðibankans í maí - júní 2022.