Mynd vikunnar

Ljósmynd: Höfðaskóli - safn
Ljósmynd: Höfðaskóli - safn

Þessi mynd var tekin á söngstund stuttu fyrir jól í Höfðaskóla, líklega kringum 1990. Við borðir sitja frá vinstri: tveir óþekktir, Erla María Lárusdóttir, tvær óþekktar, Auður Eva Guðmundsdóttir og Bjarney Katrín Gunnarsdóttir?. Uppi á borðum sitja, frá vinstri: Vignir Örn Hafþórsson, Sverrir Berndsen, Guðjón Ebbi Guðjónsson?, þrír óþekktir, Skúli Már Matthíasson, Heiðrún Ósk Níelsdóttir, Linda Jónasdóttir, Bæring Jón Skarphéðinsson, Elva Dröfn Árnadóttir, Birkir Rafn Gíslason, óþekktur, Magnús Líndal Þrastarson, Eyþór Ernstsson og Patrik Ingi Heiðarsson?. Ef þú þekkir óþekktu krakkana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd á myndasafn@skagastrond.is .