Mynd vikunnar

Hér hefur fólkið stillt sér upp til myndatöku framan við óþekkt fjárhús árið 1961. Þá var algengt að skepnuhús væru byggð úr asbesti á trégrind, eins og sést bak við fólkið, enda vissu menn þá ekki um hve heilsuspillandi efni asbest er.

Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) frá Brúarlandi, Edda Guðmundsdóttir, Jóhanna Valdimarsdóttir (Valdimars Núma Guðmundssonar), Þórey Jónsdóttir (d.29.12.1966) frá Brúarlandi, Inga Þorvaldsdóttir (d.14.12.2012) í Straumnesi dóttir hennar og Margrét Guðbrandsdóttir (d.30.3.2004), móðir Eddu á myndinni.