Mynd vikunnar

Ljósmynd: Árni Geir Ingvarsson - safn
Ljósmynd: Árni Geir Ingvarsson - safn

Þessi mynd var tekin á lokaæfingu fyrir þorrablót í Fellsborg einhverntíma kringum 1990. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Ástmar Kári Ástmarsson, Ólafur Bernódusson, Fannar Viggósson og Sigrún Jónsdóttir. Þarna voru þau að gera grín að ritnefnd bókarinnar "Byggðin undir Borginni" en Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) var formaður nefndarinnar og það skýrir klæðnaðinn á Ólafi.