Mynd vikunnar

Ljósmynd: Arnar HU 1 - safn
Ljósmynd: Arnar HU 1 - safn

Ingibjörg Dúna Skúladóttir lést 30. júlí síðast liðinn.

Ingibjörg var lífsglöð og hláturmild og mikill dugnaðarforkur sem kom sér ávallt vel í hvaða hópi sem var. Einnig var hún orðlögð fyrir að vera afar hreinlát og smekkvís eins og heimili hennar ber glöggt vitni um. 

Samúð okkar er með aðstandendum Ingibjargar, sem verða, mjög óvænt, að kveðja hana nú þegar hún hefur ferð sína inn í ljósið.

Útför Ingibjargar Dúnu Skúladóttur fer fram frá Hólaneskirkju klukkan 14:00 fimmtudaginn 10. ágúst.

Ljósmyndasafn Skagastrandar