Mynd vikunnar

 

 

Hallbjörn Björnsson (Halli Boss) landar fiski úr
Sigurði Hu  við "Litlu bryggju".
Á bryggjunni er Guðmundur J. Björnsson bróðir Hallbjörns og býr sig
undir að tína fiskinn upp á kerruna sem sér í hornið á til vinstri. 
Faðir Hallbjörns, Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) frá Jaðri, smíðaði
Sigurð Hu  og reri á honum til fiskjar endrum og sinnum. Aðallega var 
báturinn þó gerður út á grásleppu af Sigurði Björnssyni bróður
Hallbjörns og Guðmundar. Sigurður Hu er enn til og er í öruggri vörslu
Sigurðar Björnssonar.  Báturinn aftan við Sigurð Hu hét Ósk Hu og var í
eigu Stefáns Stefánssonar (d. 2.1.1988). Aftast sér svo í Víking St 12
sem var í eigu Péturs Ástvaldssonar á Hólmavík. Pétur fórst ásamt
öðrum manni með Víkingi í mars 1971. "Litla bryggjan" er nú löngu horfin
en hún var um það bil þar sem nú er suð-austur hornið á Miðgarði
(Arnarsbryggjunni). "Litla bryggjan" lækkaði fram til endans til að 
auðveldara væri að landa fiski við hana eftir stærð bátsins sem landað
var úr.
Maðurinn fremst á bryggjunni er  óþekktur.