Mynd vikunnar

 

 

 

Hressir félagar

Þessir prúðbúnu og hressu félagar frá
Skagaströnd staupa sig á Íslensku brennivíni
undir húsvegg.
Frá vinstri: Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998), Guðmundur Jóhannesson og Snorri Gíslason (d. 29.5.1994).
Ekki er vitað hvenær  myndin var tekin en hún
var tekin að húsabaki á Blönduósi,
bak við Snorrahús. Til vinstri er Pétursborg og
stóra húsið er gamla Samkomuhúsið með
sparisjóð A-Hún á neðri hæðinni.