| Þessi mynd var tekin sumarið 1983 af hvalskurði á bryggjunni í Skagastrandarhöfn.
 Á þessum árum voru tímabundið gerðir út hrefnuveiðibátar
 frá Skagaströnd af aðkomumönnum sem áttu hrefnukvóta.
 Þeir drógu síðan hvalskrokkana til hafnar þar sem þeir voru
 dregnir á land með vörubíl eða gröfu. Síðan var hvalurinn skorinn
 á bryggjunni og kjöti og spiki komið fyrir í körum sem síðan voru
 flutt burt til kaupenda.
 Beinin, bægslin og annað sem ekki nýttist var síðan tekið með
 um borð og því fleygt í hafið á Húnaflóa fjarri landi.
 |