Mynd vikunnar

 
99 ára heiðurskona.



Jónína Guðrún Valdimarsdóttir frá Kárastöðum
á 99 ára afmæli 29. nóvember 2015.
Þessi aldna heiðurkona er mannasættir sem  talar aldrei illa
um nokkurn mann þrátt fyrir oft erfiða æfi.
Lengi var hún ráðskona  hjá bræðrunum Kára (d.11.12.1990) og
Sigurbirni Kristjánssonum (d.10.9.1989) á Kárastöðum og hélt þeim
heimili ásamt dóttur sinni. 
Jónína eignaðist tvö börn, Svavar Bergmann Indriðason 1939, 
sem  lést 1.nóv. 2010,  og Kristínu Ragnheiði Sigurðardóttur 1949,
sem var með móður sinni á Kárastöðum. 
Jónína dvelur nú á Sæborg í góðu yfirlæti og eru henni færðar innilegar  
hamingjuóskir með afmælið.                  

Myndina af Nínu tók Jón Jónsson árið 1990.