Þessi mynd var tekin 1947  af horfnu húsi, Viðvík.  Húsið stóð ca þar sem er Strandgata 8 er í dag.  Húsið var reist á sjöunda áratug 19. aldar en í því var um árabil  rekið veitinga- og gistihús undir lok 19. aldarinnar.  Það var Ólafur Jósson "vert"  frá Helgavatni í Vatnsdal sem rak  veitingahúsið ásamt konu sinni Valgerði Narfadóttur.  Sagt er að Ólafur hafi verið vel af manni og ekki vílað margt fyrir  sér m.a. við að halda uppi lögum og reglu hjá gestum Viðvíkur.  Þau hjón áttu sex börn sem mörg hver urðu nafnkunn á Íslandi.  Má þar nefna Pétur A. Ólafsson sem var um tíma allt í öllu á  Patreksfirði og Láru Ólafsdóttur sem þekkt er úr bók  Þórbergs Þórðarsonar: Bréf til Láru.  Eftir að Ólafur vert hafði rekið gistihúsið Viðvík í allnokkur ár  flutti hann til Akureyrar og gerðist veitingamaður  á Oddeyrinni  þar.  Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.  Gefandi: Jóhann Pétursson Lækjarbakka á Skagaströnd.   |