Mynd vikunnar

 
Hnúfubakur.


Í ágúst 1998 komu Ólafur Bernódusson
og Guðmundur J. Björnsson í land á
trillu sinni, Benna Ólafs, með hnúfubak í
eftirdragi.
Hvalinn höfðu þeir fundið dauðan á reki
norður með landi. Hnúfubakurinn var ungkálfur
- tarfur -  um 10 metra langur. Hvalurinn
var dreginn upp í fjöru til að rannsóknamenn frá Hafrannsóknastofnun gætu skoðað hann og
tekið úr honum sýni.
Eftir sýnatöku og skoðun margra bæjarbúa var
hvalurinn dreginn aftur út á haf og fargað
þar.
Á myndinni er Hafró fólkið, íklætt hlífðarbuxum,  
að undirbúa sýnatöku.
Guðmundur J. Björnsson stendur við sporðinn
í blárri peysu, aðrir eru óþekktir.
Til gamans má geta þess að reður hvalsins
var sendur til Reðursafns Íslands að ósk
eiganda safnsins en hann ætlaði að hafa
reðurinn þar til sýnis með öðrum slíkum
líffærum af hinum ýmsu spendýrum.
Myndina tók Magnús B. Jónsson.