Mynd vikunnar

 

Báturinn Skíði HU-8 fórst 22. nóvember 1961.

Mynd vikunnar er af bræðrunum Hirti Hjartarsyni og Sveini Hjartarsyni frá Vík á Skagaströnd sem fórust með bát sínum Skíða HU-8.
Í dagblaðinu Vísi birtist eftirfarandi frétt 23.nóvember 1961:


"Óttast að tveir bræður hafi farizt.

Norður á Skagaströnd óttast menn mjög að tveir bræður hafi farizt í róðri í gærdag. — Bræðurnir sem eru Hjörtur og Sveinn Hjartarsynir eiga heima á Skagaströnd og eru menn einhleypir. í gærdag hófst leitin, og hefur henni verið haldið látlaust áfram þrátt fyrir stórsjó og hríð á Húnaflóa.
Laust fyrir hádegið átti blaðið tal við Skagaströnd. Var þá tíðindalaust af leitinni, sem varðskipið Óðinn hefur haldið uppi í alla nótt. Var flokkur manns farinn á fjörur. Lítilsháttar frost var, hvasst og hríð. Bræðurnir Hjörtur og Sveinn eru synir Hjartar Klemenzsonar sem er maður við aldur og sjálfur stundaði sjómennsku.
Um klukkan 1,30 í gærdag voru bræðurnir undan Skallarifi. Þeir voru þá að draga línuna, en höfðu slitið hana og voru að leita. Var þá orðið hvasst. Var ákveðið að þeir skyldu láta til sín heyra um klukkan 3. Er um 2 og 1/2—3 tíma sigling frá Skagaströnd á þessi mið. Vélskipið Húni var í róðri. Kl. 3 er ekkert heyrðist frá bræðrunum hélt Húni þegar á vettvang og leitaði hann á allri leiðinni frá Skallarifi og inn, en árangurslaust.
Í gærkvöldi voru 10 vindstig á Skagaströnd og mikill sjór og hríð. Varðskipið Óðinn kom á
vettvang og hóf að leita, og leitaði enn í morgun en hafði einskis orðið var. Óttast sjómenn á Skagaströnd, að brot hafi komið á bátinn, en sjólag er mjög slæmt undan Skallarifi.
Bræðurnir Hjörtur og Sveinn eru menn á fertugsaldri og hafa stundað sjóinn í sameiningu á bát sínum, en hann var 8 tonn dekkbyggður".

Myndin er í eigu Muna- og Minjasafns Skagastrandar.
Gefandi: Birgir Árnason Straumnesi á Skagaströnd.